Flýtilyklar
KA segir upp samningi við Halldór Stefán
31.03.2025
Handbolti
Handknattleiksdeild KA hefur ákveðið að segja upp samningi við Halldór Stefán Haraldsson, þjálfara liðsins.
Eftir krefjandi vetur tók stjórn deildarinnar þá erfiðu ákvörðun að gera breytingar á þjálfarateyminu. KA vill þakka Halldóri innilega fyrir hans störf, en hann hefur lagt líf og sál í liðið síðastliðin tvö ár og sinnt starfinu af heilindum og virðingu.
Leit að nýjum þjálfara er hafin og verður frekari frétta að vænta á næstu vikum.